,

RimX lás frá ZERMATT ARMS

kr.249,000

.22 LR lásar í Remington 700 Footprint, Gikkir hannaðir fyrir Remington 700 lásinn passa beint í þennan lás sem og skepti.  Magasínið sem fylgir er í AISC patterni og tekur 10 skot.  Einnig til fyrir cal: 17 Mach 2 – .17 HMR – .22 MAG – .17 WSM.

SKU: N/A Categories: ,

Upplýsingar um RimX .22 LR lásinn frá Zermatt Arms.

RimX rimfire lásinn er nýjasti lásinn í bolta lása flórunni frá Zermatt Arms.  Margir kannst við boltalásana frá BigHorn sem eru líka hannaðir og smíðaðir af Zermatt Arms í Nebraska.  Þessi lás var hanaður með það í huga að keppnis fólk hafi ódýrari leið til þess að æfa og skjóta án þess að fórna gæðum í smíði lássins.

Eins og Origin og TL3/SR3 lásarnir frá BigHorn, þá passar RimX lásinn í skepti sem eru smíðuð fyrir Remington 700 lásinn og notar líka Remington 700 gikk ásamt því að magasínið notar AICS magasín op.

RimX lásinn er með útskiptanlegum boltahaus líkt og Origin/TL3/SR3 lásarnir og er hægt að kaupa auka hausa fyrir .17 HMR/22 mag og .17 WSM.  Allir boltahausarnir eru útbúnnir með sérstökum útdragara, sem er þannig gerður að hægt er að rýma hlaupið án þess að búa til sérstaka rauf í það fyrir útdragaran.  Þetta gerir það að verkum að það er mjög auðvelt að skipta um hlaup á lásnum.

Eitt magasín fylgir með lásnum en það er líka hægt að kaupa auka magasín og magasín framlengingu á það.   Magasínið er gert úr 7075 áli og húðað með sérstakri filmu til að auka endinguna.  Hægt er að stilla hæðina á magasíninu til þess að það passi sem best upp á fæðinguna á skothylkinu upp í hlaupið.  Magasínið er líka útbúið með grip flötum á báðum hliðum þannig að mjög auðvelt er að fylla það af skotum.

Ekki er ráðlegt að reyna að koma skoti í hlaupið með annari aðferð en að fæða það upp úr magasíninu upp í skothúsið, þar sem þá er hætta á að brjóta út dragaran.

RimX Eiginleikar.

Remington 700 Footprint

Innbyggt recoil lug

Nitrided húðaður lás og bolti

DLC húðaður boltahaus

Útskiptanlegur útdragari

Lemur neðst á rimið á skotinu

Hægt að taka bolta í sundur án sérstakra verkfæra

Úskiptanlegur boltahaus

.22LR / 17 Mach 2

.17 HMR

.17 WSM

Fjórar útgáfur af halla á sjónaukafestingu:

0, 20, 30 og 40 MOA

Sex útgáfur af boltahaldfangi:

Tactical, teardrop, helical diamond, spiral diamond, competition og spiral extended

Magasín úr 7075 áli fyrir 10 skot, hægt að stilla hæð

Magasín framlenging fyrir 5 skot í viðbót.

Álit

There are no reviews yet.

Only logged in customers who have purchased this product may leave a review.